Næsta / Next
Nýr lánsrakki

30.11.2011

Í samvinnu við hjónakornin Stjána og Eddu sem eru stoltir eigendur Made In Iceland White Xmas Angel eða Snædís, erum við að fá til landsins nýjan lánsrakka. Að þessu sinni fengum við lánaðan FICH EECH QUICKSTEP BSH von Portenschlag og er hann í boði sem "stud" á tíkur fljótlega eftir áramót. Hann er beri fyrir hvítan og PS lit og er það von okkar að hann bæðí stækki og bæti genapottinn hér á landi og eins vonumst við til að bæta við ISCH og Int.Ch titli á hann áður en honum verður skilað aftur. Áhugasömum um að fá hann lánaðan er bent á að hafa samband við Stjána í síma:





Hvolpar

26.10.2011

Hann Sveppi er komin með frábært heimili á Akureyri og þökkum við þeim fjölmörgu sem höfðu samband við okkur í sambandi við hann, hann heitir núna Pjakkur og mun alast upp með öðrum svörtum dverg. Við eigum ennþá eitthvað af hvolpum ólofuðum, en elsta gotið er tilbúið til afhendingar 5.nóvember og gaman að segja frá því að eina tíkin úr því goti fer til Noregs. Allar nánari upplýsingar um gotin er hægt að finna á hvolpa síðunni okkar.


11.vikna rakki til sölu

23.9.2011

Ringos son from Svartskeggs "Sveppi" er gullfallegur og skemmtilegur rakki sem leitar af góðu framtíðarheimili, Sveppi er efnilegur sýningahundur af áhugaverði línu og okkar fyrsta val úr þessu goti. Foreldrar: Nala og Svartskeggs Levi Pepper Guy "Ringo" Honum fylgir veglegur startpakki frá Hundaheim, snyrting og ættbók frá HRFI. Áhugasamir hafi samband í síma 846-8171 eða á esther@midja.is


Góð sýningahelgi

1.9.2011

Sýndum hundana okkar á alþjóðlegri sýningu HRFI helgina 27-28.ágúst með frábærum árangri. Á laugardeginum varð Himna Hrafna Besti hundur tegundar (BOB) í Griffon Belge með sitt annað íslenska meistarastig og sitt fyrsta alþjóðlega stig. Evening Star Dinastija "Anya" varð önnur besta tík í Griffon Bruxellois, fékk líka sitt annað íslenska meistarastig og vara-cacib og þar sem meistartíkin sem varð í fyrsta sæti er orðinn alþjóðlegur meistari, gengur stigið niður til Önyu, þannig að hún er jafnframt komin með sitt fyrsta CACIB. Á sunnudag varð svo ISCH Silfurskugga Capone White Boss, besti hundur tegundar í hvítum dvergschnauzer og fékk sitt þriðja CACIB, þannig að honum vantar bara eitt.


World Winner hvolpur

14.7.2011

Fengum afhenda nýja svarta dvergschnauzertík á heimsýningunni í París og ákváðum að fyrst við vorum þar á annað borð að það væri gaman að skrá hana á sýninguna sem og við gerðum. Sú litla gerði sér lítið fyrir og vann tíkarhvolpana og vann svo besta rakka hvolpinn og er því WW-Puppy. Tíkin kemur frá Slóvakiu frá ræktenda sem við höfum átt góð samskipti við í gegnum tíðina, fengum meðal annars lánaða Jackpot og Dennis frá henni á sínum tíma. Neretva z Sardanu eða Nína mun koma til Íslands seinna á árinu og vonandi gera góða hluti á sýningum hér á landi.


Á myndinni 3.5 mánaða



Open sýning

1.7.2011

Tókum að sjálfsögðu þátt í útilegu og sýningu á vegum deildarinnar okkar að Ólafsvöllum núna um miðjan júní. Dómari á þessari fyrstu opnu sýningu var Frú Sigríður Pétursdóttir og gaman að segja frá því að hundum frá okkur gekk mjög vel. Besti hundur sýningar nr.2 varð Made In Iceland White Xmas Angel eða Snæja, stoltir eigendur af henni eru Edda og Stjáni, besti hundur sýningar nr.3 varð pipar og salt strákurinn okkar Ringo Svartskeggs Levi Pepper Guy, Besti hundur sýningar í Freestyle varð Svartskeggs Jack Black Daniels og besti hvolpur sýningar er tík í okkar eigu, Princess Leia By Svartskeggs.

BIS-2 Made In Iceland White Xmas Angel, foreldrar CIB ISCH SUCH Dynamic Dolce Vita Of Roxy´s Pride and ISCH Silfurskugga Capone White Boss.


BIS-3 Svartskeggs Levi Pepper Guy, foreldrar Scedir Elenora Duse og ISCH Silfurskugga Griffin P/S Flying High.



Sýningar.

30.3.2011

Í lok febrúar og byrjun mars voru alls þrjár sýningar með þremur mismunandi dómurum. Okkur gekk virkilega vel þar eins og áður og hreinlega gleymdum að monta okkur af þeim frábæra árangri en bætum úr því núna.

HRFI sýning 26.feb - Dómari Bigit Seloy frá Danmörku


Wellingley Whats The Game At Beanara BOB, CAC, CACIB
ISCH Isabella frá Ólafsvöllum BOS, CACIB


Svartskeggs Marilyn Salt Monroe BIS -2 Puppy.


White: Made in Iceland White Xmas Angel BOB, CAC
Made in Iceland White Volcano Ice BOS, CAC
En bæði Made In Iceland hundarnir voru í ungliðaflokk og því of ung fyrir CACIB, en gaman að því að þetta eru hundar úr sitthvoru fyrstu tveim gotunum frá okkur og eru þau algjörlega óskyld, ekkert smá flott byrjun í ræktun á hvítum að eiga besta hund og tík!


Svart&silfur: Svartskeggs Handsome Silver Boy BOS, CAC, CACIB og núna ISCH :)))

Griffon;
Bruxellois:
Gull-Gæfu Millionaire 2.besti rakki með Ísl.meistarastig (CAC)
Evening Star Dinastija Besta tík í ungliðaflokk.
Belge:
Himna Hrafna 2.besta tík með ísl.meistarastig (CAC)

Tvöföld afmælissýning Schnauzerdeildar HRFI 5-6 mars 2011.

Laugardagur:
Svartskeggs Jewel Salt Crystal BOB með sitt síðasta CAC og er núna ISCH :))
Silfurskugga Capone White Boss BOB og BIS-4!!
Made in Iceland White Xmas Angel BOS, CAC.
Svartskeggs Black Pearl BOB í risaschnauzer og BIS-3!!

Sunnudagur:
Hvítir: ISCH Silfurskugga Capone White Boss BOB and BIS-4 aftur!!
Made In Iceland Xmas Angel BOS, CAC og Best Junior
Made In Iceland Volcano Ice: Best male-2 with CAC.
P/S: ISCH Svartskeggs Jewel Salt Crystal BOS
Wellingley Whats The Game At Benara Best male-2 með sitt síðasta CAC og er núna ISCH og SUCH.



Okkar fyrsti griffonhvolpur

11.2.2011

Þann 10.febrúar sl fæddist fyrsti Svartskeggs hvolpurinn af Griffon tegundinni, yndislega krúttleg black/tan stelpa sem við höfum ákveðið að muni heita Svartskeggs Princess of Poughkeepsie í ættbók og verða kölluð Snookie.

Dagsgömul á myndinni.

Stoltir foreldrar eru Xenna Dog Lome (Belgian) and Gull-Gæfu Millionaire (Bruxellois).



Gleðilegt jól kæru vinir

20.12.2010





Stigahæðstu hundarnir 2010

29.11.2010

Þegar stig hafa verið talið saman um stigahæðsta hund ársins hjá Schnauzerdeildinni, kemur í ljós að okkar ræktun á eða ræktaði stigahæðsta hund í þremur litum af fjórum!!
Svartskeggs Jewel Salt Crystal er stigahæðsti PS hundurinn og jafnframt nr.2 í stigahæðsta hund ársins allar stærðir og gerðir.
Lánshundurinn okkar Silfurskugga Griffin PS Flying High stigahæðsti rakkinn í P/S.
Silfurskugga Capone White Boss Stigahæðsti hvíti hundurinn.
Svartskeggs Handsom Silver Boy, Stigahæðsti Svart/silfur hundurinn.
Svartskeggs Absolut Power varð stigahæðsti rakkinn í risaschnauzer svörtum.
Æðislegt ár hjá Svartskeggsræktun, og eiga eigendur þessara hund og sýnendur þakkir skyldar fyrir alla vinnuna.



Næsta / Next